top of page
DSG Logo Black.png

Starfsfólk Dansgarðsins

Stjórnendur 

IMG_9014_jpg.jpg

Guðrún Óskarsdóttir
Skólastjóri

Guðrún Óskarsdóttir er skólastjóri Óskanda; kennari með MA gráðu frá listkennsludeild Listaháskóla Íslands og jógakennari með sérmenntun í meðgöngu-/mömmujóga, krakkajóga og jóga fyrir börn með sérþarfir. Hún bætti við sig námi í ungbarnanuddi frá Liddle Kidz og hreyfiþroska barna frá Baby Bare, auk þess stundaði hún kennaranám hjá Creative Dance Center sem byggir kennslufræði sína á hreyfiþroskaferli barna. Hún sótti einnig doulunám við Bastyr University/Simkin Center í Seattle og námskeið hjá Penny Simkin um áhrif kynferðisofbeldis í æsku á barnshafandi mæður. Guðrún er með réttindi til að kenna PBT tíma og stundar nám við School for Body-Mind Centering hjá Embody Move í Bretlandi.

Guðrún hóf dansnám sitt við Ballettskóla Guðbjargar Björgvins, útskrifaðist frá framhaldsbraut Listdansskóla Íslands, lauk diplóma frá Kungliga Svenska Balettskolan í Stokkhólmi og starfsþjálfun frá Íslenska dansflokknum og Dansk dansetheater í Kaupmannahöfn. Auk þess sem hún hefur sótt fjölda dansnámskeiða. Hún dansaði með Íslenska dansflokknum og vann meðal annars með danshöfundunum Rami Be’er, Didy Veldman, Stephen Shropshire, Jóhanni Frey Björgvinssyni og Helenu Jónsdóttur. Hún stofnaði danshópinn Darí Darí Dance Company ásamt tveimur öðrum dönsurum og hefur fengið tækifæri til að vinna sjálfstætt með danshöfundum og dansflokkum hérlendis og erlendis ásamt því að hafa verið í stjórn Reykjavík Dance Festival og Félags íslenskra listdansara (FÍLD).

Guðrún hefur kennt síðan 2006, bæði í listdansskólum á forskóla-, grunnnáms og framhaldsbrautarstigi og á öllum stigum skólakerfisins frá leikskóla til listaháskóla. Guðrún hefur brennandi áhuga á heilsueflandi skólaumhverfi og hreyfiþroska barna, hvernig hreyfing og umhverfið gegna mikilvægu hlutverki í þroska barnsins. Guðrún hefur unun af því að vera með nemendum, leiða aðra kennara í starfi og eiga í góðum samskiptum við foreldra. Henni finnst yndislegt að fylgjast með nemendum þroskast og sjá litlu sigrana sem eru þó svo stórir.

13-IMG_8669_jpg.jpg

Katla Þórarinsdóttir
Aðstoðarskólastjóri

Katla Þórarinsdóttir er aðstoðarskólastjóri Óskanda; dansari, danskennari, grunnskólakennari og pilates kennari. Katla útskrifaðist frá Kennaraháskólanum 2001 með B.Ed gráðu sem grunnskólakennari með sérsvið í náttúrufræðum. Hún lauk námi við í Laban Trinity, London 2006, þar sem hún útskrifaðist af masterstigi í dansi, kennslu og samfélagslegum 

dansverkefnum. 2021 lauk hún kennaranámi sem pilates mat kennari frá Kane School, New York.

 

Katla lærði og þjálfaði líkama sinn í klassískum ballet frá barnæsku og hóf snemma að kenna undir leiðsögn Guðbjargar Astridar Skúladóttur stofnenda Klassíska listdansskólans. Eftir að hafa lokið því dansnámi sem var í boði á Íslandi einbeitti hún sér að nútímadansi og fór til Englands til að læra meira. Eftir útskrift frá Trinity Laban, London hefur hún unnið samfleytt sem atvinnudansari, danshöfundur og danskennari. Katla stofnaði dansflokkinn Dari Dari Dance Company ásamt tveimur öðrum dönsurum, framleiddi og sýndi með þeim þrjú fullgerð verk sem öll voru sýnd á danshátíðum víðsvegar um Evrópu.  2009 stofnaði hún Sirkus Íslands ásamt öðrum og sýndi víðsvegar um Evrópu loftfimleika og akróbat ásamt því að stýra flokknum þar til 2012.  2012 starfaði Katla og dansaði með dansflokknum Egri Bianco á Ítalíu, Torino og árið 2015 byrjaði hún að vinna með Fidget Feet írskum loftfimleika- og sirkusflokki að verkinu Fjaðrafok sem framleitt var í samstarfi við Bíbí og Blaka. Verkið var í sýningu í nokkur ár og var sýnt yfir 100 sinnum í 10 löndum. Katla starfaði síðan áfram með dansflokknum Bíbí og Blaka og lauk sýningum með þeim í lok árs 2022 en dansflokkurinn sérhæfir sig í verkum fyrir unga áhorfendur.  

Katla hefur kennt dans í hátt í 30 ár á Íslandi, Ítalíu, Austurríki og Englandi. Hún hefur kennt í grunnskólum Reykjavíkur í yfir 15 ár hefðbundna bekkjarkennslu og sem listasmiðjukennari með áherslu á Sirkus. Katla hefur brennandi áhuga á danskennslu og dansuppeldi barna og unglinga. Hún miðar að því að finna leið fyrir hvern og einn nemanda og virðir og sér fegurðina í því að nemendur blómstra allir á mismunandi tíma. Síðastliðin 5 ár hefur Katla verið yfir Grunndeild og forskóla Klassíska Listdansskólans ásamt því að hafa setið í stjórn Dansgarðsins og verið í stjórnendateymi hans. 

Netfang: katla@oskandi.is

1-IMG_8520_jpg.jpg

Hrafnhildur Einarsdóttir
Velferðarfulltrúi og alþjóðatengsl

Hrafnhildur Einarsdóttir er velferðarfulltrúi og sér um alþjóðatengsl Óskanda. Hún er með yfir fimmtán ára reynslu af kennslu, stjórnun og uppbyggingu listdansmenntunar á Íslandi. Hún var skólastjóri Klassíska listdansskólans 2017 - 2025. Hún lauk BA-prófi í listdansi og danssmíði frá Trinity Laban Conservatoire of Music and Dance í London árið 2009 og stundar nú meistaranám í listum og velferð við Listaháskóla Íslands.

Á starfsferli sínum hefur Hrafnhildur sameinað listræna reynslu sem dansari, kennari og danshöfundur við stefnumótun, verkefnastjórnun, þróun menntaverkefna og samfélagslista. Hún hefur leitt fjölmörg þróunarverkefni á sviði listdans, meðal annars með stofnun Dansgarðsins, þróun FWD Youth Company og verkefninu Dans fyrir alla, sem hafa haft það að markmiði að efla listdansmenntun, auka aðgengi að dansi og skapa fleiri tækifæri fyrir börn, ungt fólk og atvinnulistafólk.

Hrafnhildur er íslenskur tengiliður í norræna Erasmus+ samstarfsverkefnið CLEAR – Career Learning and Career Competence in Performing Arts Education, þar sem unnið er að þróun aðferða sem styðja við starfsfærni, sjálfbærni og velferð ungs sviðslistafólks. Í því hlutverki tekur hún þátt í alþjóðlegu samstarfi um þróun listmenntunar og miðlun þekkingar milli samstarfsaðila. 

Auk stjórnunarstarfa hefur Hrafnhildur tekið virkan þátt í stefnumótun og þróun íslensks danssamfélags. Hún var meðal þeirra sem leiddu dans stefnumótun Félags íslenskra listdansara 2022–2032 og hefur setið í stjórn Reykjavík Dance Festival, Félags íslenskra listdansara (FÍLD) og Dansverkstæðisins.

Í starfi sínu leggur Hrafnhildur sérstaka áherslu á gæði listdansmenntunar, heilsueflandi skólaumhverfi, inngildingu og velferð nemenda og starfsfólks. Hún hefur verið leiðandi í uppbyggingu náms sem sameinar listrænan metnað, fagmennsku og sterka nemendamiðaða sýn með það að markmiði að efla og þróa listdansmenntun á Íslandi til framtíðar.

Netfang: dansgardurinn@dansgardurinn

IMG_8912_jpg (1).jpg

Ernesto Camilo Aldazabal Valdes
Ráðgjafi - Dansgarðsins

Ernesto Camilo er fæddur á Kúbu árið 1990. Hann er útskrifaður úr La Escuela Nacional de Arte (Listdansskóli á Kúbu) sem danskennari og dansari. Árið 2008 hóf hann störf við dansflokkinn „Danza Espiral“ á Kúbu. Camilo fór til Mexikó sem kennari og dansari árið 2010. Árið 2011 kom til Íslands þar sem hann tók þátt í mismunandi sýningum og námskeiðum. Árið 2012 vann hann í eitt ár i Point Dansstudíói á Akureyri sem nútíma danskennari. Á þeim tíma vann hann einnig tvö dansverk með Önnu Richardsdóttur, Inanna, Ereskigal, Oggun, Freyja og barnaverk. Árið 2013 hóf hann störf sem nútímadans kennari í Klassíska listdansskólanum síðan og er þar enn. Á þeim tíma Camilo kenndi fyrir Salsaiceland og var boðið að dansa og kenna á tveimur salsacongress í Noregi og í Svíþjóð. Árið 2016 vann Camilo sem danshöfundur og dansari með Forward Youth Company í dansverki hans RITMO. Hann lék í áramótaskaupinu 2016. Camilo hefur unnið sem dansari og leikari fyrir Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið, íslenska Dansflokkinn og íslensku Óperuna. Árið 2019 var hann tilnefndur Leikari ársins í Sögur -Verðlaunahátíð Barnanna og dansari ársins á Grímunni.

 

IMG_2215_jpg.JPG

Aude Busson
Gjaldkeri - Dansgarðsins

Aude Busson er verkefnastjóri Dansgarðsins siðan 2017. Þar er Aude að sjá um „Dans fyrir alla“ og með markmið að gera dans aðgengilegri. Aude sér um dansfræðsludaga fyrir grunnskólanna, Mjóddamamma, Dansdagur á Barnamenningarhátið, Forward Youth Company og nemendarráð Klassíska Listdansskólans. Aude útskrífaðist með B.A úr sviðshöfundabraut Listaháskólans árið 2011. Hún hafði þar á undan lokið við háskólanám DEUG í leikhús og kvikmyndafræðum frá Háskólanum Rennes II, í Frakklandi, 2001. Frá útskrift, 2011, hefur Aude unnið sem leikstjóri, leiðbeinandi og verkefnastjóri. Hún hefur áhuga á að skapa sýningar og viðburði sem byggjast á þátttöku áhorfenda, þar sem flytjendur eru ekki atvinnumenn eða eru fyrir/með börnum.  Hún hefur unnið með nokkrum sviðslistahópum og einnig að eigin listaverkum, til dæmis Ég elska Reykjavík, fjölskyldu göngusýning, 2014. Aude hefur siðan 2013 verið í stjórn Assitej á Íslandi. Hún hefur tekið að sér listrænni stjórnun Ungi hátiðinni árið 2014 og fékk fyrir það tilnefningu til Menningarverðlauna DV.  Aude var líka verkefnastjóri fyrir Unglingurinn í RDF frá 2014-2016.

9-IMG_8629.jpg

Ellen Harpa Kristinsdóttir
Formaður Dansgarðsins

Ellen hefur verið tengd dansinum frá unga aldri og hóf dansnám sitt í Ballettskóla Guðbjargar Björgvins. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2005 stundaði hún listdansnám á framhaldsbraut Klassíska listdansskólans. Þaðan lá leið hennar til London, þar sem hún lauk BA-prófi í listdansi og danssmíði frá Trinity Laban Conservatoire of Music and Dance í London árið 2010.

Frá útskrift hefur Ellen starfað við kennslu í ballett og nútímadansi, auk þess að standa að skipulagningu fjölmargra dansnámskeiða og sýninga. Árið 2018 lauk hún MA-gráðu í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Ellen hefur verið hluti af Dansgarðsteyminu frá árinu 2019 og er í dag formaður stjórnar Dansgarðsins.

8-IMG_8621_jpg.jpg

Sally Cowdin
Fagstjóri framhaldsbrautar, klassískrar listdansbrautar

Sally Cowdin er fagstjóri framhaldsbrautar, klassískrar listdansbrautar. Sally er fædd og uppalin í Kansas City í Missouri í Bandaríkjunum. Hún nam við Kansas City Ballet School (KCB), School of American Ballet og Chautauqua Ballet School, auk fleiri skóla, og lauk dansnámi sínu hjá Alonzo King LINES Ballet.

Árið 2012 flutti Sally til Þýskalands þar sem hún starfaði með StaatsBallett Mainz, Stephan Delattre Dance Company og Friedrichstadt-Palast í Berlín undir listrænni stjórn Thierry Mugler.

Frá árinu 2016 hefur hún starfað sem sjálfstætt starfandi listamaður víðs vegar um Evrópu og komið fram sem dansari, leikkona og danshöfundur, auk þess að kenna og skapa verk fyrir bæði svið og kvikmyndir. Árið 2020 lauk hún meistaragráðu í leiklist frá Institute of the Arts Barcelona.

Sally flutti til Reykjavíkur árið 2024. Hún hefur kennt við Dansgarðinn - Óskanda, Íslenska dansflokkinn, Kramhúsið og fleiri skóla. Árið 2025 hóf hún þjálfun í sirkuslistum og stundar nú æfingar og sýningar á í loftfimleikum með Hringleik og Sirkús Íslands víðsvegar um landið.

Hún er stofnandi Ballet Axis, sem frumsýndi sitt fyrsta verk í janúar 2026 og mun frumsýna kvöldverk í þremur hlutum, Meeting Pointe, í janúar 2027 í Tjarnarbíói. Árið 2026 var Sally jafnframt meðhöfundur danshöfundarverks söngleiksins Cabaret, sem var frumsýndur í Kjallaranum í Þjóðleikhúsinu og er enn á sýningarskrá.

Í vor hlaut Sally fjórar tilnefningar til Grímunnar 2026 og hlaut tvö Grímuverðlaun, danshöfundur ársins fyrir Pointe of Axis með Ballet Axis og fyrir sviðs- og hreyfistjórn söngleiksins Cabaret.

Samhliða eigin listsköpun er Sally sendiherra svissnesku samtakanna What Dance Can Do, þar sem hún starfar í sjálfboðaliðastarfi við að færa börnum á átakasvæðum og í öðrum erfiðum aðstæðum um heim allan dans og hreyfingu sem tjáningar- og styrkingarform.

Linde.JPG

Linde Hanna Rongen
Fagstjóri framhaldsbrautar, nútímalistdansbrautar

Linde Hanna Rongen er fagstjóri framhaldsbrautar, nútímalistdansbrautar. Hún er sjálfstætt starfandi þverfaglegur listamaður með aðsetur í Reykjavík. Hún er fædd og uppalin í Hollandi og hóf sérhæft dansnám sitt við Intensieve Dans Academie (IDA), hæfileikaþróunarnám í samstarfi við Codarts Rotterdam. Árið 2020 útskrifaðist hún frá Fontys University of Fine and Performing Arts með "minor" í frumkvöðlafræðum og hönnun fyrir miðla og sviðslistir (Entrepreneurship and Media and Performance Design). Á námsárum sínum stundaði hún skiptinám við Listaháskóla Íslands árið 2019 og lauk starfsnámi hjá Íslenska dansflokknum árið 2020.

Að námi loknu settist Linde að á Íslandi og hefur síðan þróað listsköpun sína bæði hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi. Hún stofnaði verkefnamiðaða dansflokkinn Project HOFIE og var meðal stofnenda Improv for Dance Enthusiasts. Árið 2023 bar hún sigur úr býtum í alþjóðlegu RE-USE Hackathon-keppninni í Prag og er jafnframt meðlimur í Dans.haus Collective og Catwalk Collective.

Samhliða eigin listsköpun hefur Linde þróað eigin tækni sem byggir á samtímadanstækni. Hún kennir reglulega tíma og leiðir vinnustofur fyrir ýmis listafélög, stofnanir og undirbúningsnám í dansi, bæði á Íslandi og erlendis.

Kennarar- skólaárið 2026-2027

Dansgarðurinn-teachers_108.jpg

Andrea Urður Hafsteinsdóttir

Kennari

Andrea Urður hóf balletnám sitt við Balletskóla Sigríðar Ármann þegar hún var fjögurra ára gömul. 9 ára færði hún sig yfir í Listdansskóla Íslands og hefur dansað með FWD Youth Company frá árinu 2017. Andrea byrjaði að kenna ballet árið 2014 í Klifinu sem er skapandi setur fyrir ýmis listnámskeið, þar kenndi hún nemendum á aldrinum 3-7 ára. Sumarið 2016 skipulagði Andrea og stjórnaði skapandi námskeiði fyrir börn á aldrinum 5- 12 ára þar sem lögð var mikil áhersla á skapandi dans ásamt öðrum listgreinum. Haustið 2019 byrjaði Andrea að kenna í forskólanum hjá Ballettskóla Guðbjargar Björgvins, núna Óskandi, og í grunnnáminu hjá Klassíska listdansskólanum. Andrea Urður er einnig nemi í lögfræði við Háskóla Íslands.

IMG_3373.JPG

Amelia Eisen

Kennari

Amelia Eisen er frá Nevada City í Kaliforníu og starfar á alþjóðlegum vettvangi milli Reykjavíkur, Þýskalands og Kaliforníu sem sjálfstætt starfandi danslistamaður og ráðgjafi á sem samþættir hreyfingar og heilsu. Hún stundaði nám hjá Alonzo King's LINES Ballet í San Francisco, Kibbutz Contemporary Dance Company í Ísrael og Institute for Integrative Nutrition í New York.

Amelia lítur á dans sem öflugt listform sem getur stuðlað að meðvitaðra og umhyggjusamara samfélagi. Í starfi sínu leggur hún áherslu á að hjálpa fólki að tengjast á dýpri hátt bæði eigin innri rödd og því umhverfi sem það býr í. Bakgrunnur hennar í heildrænni heilsu byggir á tengslum hugar, líkama og anda og því hvernig einstaklingar eiga í samspili við umhverfi sitt.

Undanfarin tíu ár hefur Amelia sýnt eigin dansverk í San Francisco, Ísrael, Þýskalandi og á Íslandi. Sem dansari hefur hún unnið með fjölmörgum danshöfundum og dansflokkum, þar á meðal Leonardo Rodrigues Santos, Catherine Guerin, Michael Bronczkowski, Pascal Sangl, Kirill Berezovski, Miriam Markl, 5elefants Tanzkollektiv, Crystal Schüttler, Green Flamingo Project, Richard Oberscheven, Taulant Shehu, Luis Sayago, ZiRu Dance Company, Kinetech Arts og Project Agora.

Frá árinu 2023 hefur Amelia tekið þátt í fjölmörgum listamannadvölum hjá SÍM Residency og Dansverkstæðinu.

Hún hefur kennt samtímadans, ballett, spuna og skapandi hreyfikönnun fyrir fólk á aldrinum þriggja til níutíu og fimm ára hjá meðal annars Eintanz Haus Mannheim, Tanzplattform Rhein-Main Frankfurt, Tanznetz Freiburg, Dansverkstæðinu, FWD Youth Company, Valkyrju danslistarskóla, Bodies of Empowerment í San Francisco og Nevada Union High School.

Amelia leiðir jafnframt Embodied Transitions-verkefnið, stuðnings- og leiðsagnaráætlun fyrir danslistafólk sem er að stíga sín fyrstu skref inn í atvinnulífið.

10-IMG_8656_jpg.jpg

Asako Ichihashi

Kennari

Asako stundaði ballettnám í Japan þar sem hún ólst upp. Þaðan lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem hún lauk B.F.A. prófi í listdansi árið 1991 frá Shenandoah University í Virginíu. Að loknu námi dansaði hún með Dayton Contemporary Dance Company dansflokknum í Ohio í Bandaríkjunum. 

 

Asako flutti til Íslands árið 1993 og stofnaði Ballettskóla á Akureyri sem hún rak um sjö ára skeið. Hún hefur kennt einnig á píanó við Tónlistarskóla Eyjafjarðar. 

Eftir hún flutti suður, hefur hún kennt listdans við Listdansskóla Íslands, Listdansskóla Hafnarfjarðar og Óskanda og tónlist og hreyfingu í Leikskóla Fögrubrekku í Kópavogi. 

Vorið 2008 lauk hún kennsluréttindanámi við Kennaraháskóla Íslands og er með framhaldsskólakennararéttindi í listdansi. Vorið 2021, lauk hún meistaranámi í listkennslu við Listaháskóla Íslands.

IMG_9101_jpg.jpg

Auður Ragnarsdóttir

Kennari

Auður er danskennari og danshöfundur að mennt. Hún hóf dansnám ung að aldri í klassískum ballett og djassballett. Hún flutti til Íslands 2002 og hóf þá dansnám í Klassíska listdansskólanum. Auður lauk framhaldsbraut Klassíska listdansskólans í nútímadansi 2009. Þaðan fór hún í B.F.A. nám í danssmíði hjá Concordia Háskóla í Montréal í Kanada og síðar lauk hún M.Art.Ed. gráðu í sviðslistakennslu hjá Listaháskóla Íslands. Auður hefur stýrt ýmsum sjálfstæðum verkefnum bæði hérlendis og erlendis. M.a. hélt hún utan um ungmennaskipti styrkt af Erasmus+ fyrir nemendur í Klassíska listdansskólanum þar sem farið var til Portúgal og sett upp sýning í samstarfi við tónlistarskóla þar. Auður elskar dans í öllum sínum birtingarmyndum og hefur einnig lagt stund á loftfimleika, súlufimi og hip hop á síðustu árum.

IMG_3398_jpg 2.JPG

​Ása María Sigrúnardóttir

Kennari

Ása María útskrifaðist úr listaháskólanum Institute Of The Arts Barcelona 2023 með BA gráðu í dansi en svo lá leiðin til Búdapest þar sem stefnan var sett á sviðslista- og dansnám hjá Sub.Lab.Pro. Þar fékk hún reynslu af fjölbreyttum sviðslistum og vann meðal annars með danshöfundinum Barnaby Booth (UK), Jenna Jalonen (FI) og fleirum.

Eftir árs dvöl í Búdapest, flutti hún heim og tók þátt í alls konar verkefnum eins og PBT tónlistarmyndbandi og söngvakeppni sjónvarpsins. Undanfarið hefur hún verið að dansa í verkefnum með Uppklapp. 

 

Samhliða danskennsluni er hún annar stofnandi vefsíðunnar Movement Database Iceland. Einnig er hún áhugamyndatakari og tekur af og til dansmyndatökur.

Birna.JPG

Birna Karlsdóttir

Kennari

...

IMG_9127_jpg.jpg

Bjartey Elín Hauksdóttir

Kennari

Bjartey er dansari, danshöfundur og danskennari. Hún stundaði nám í ballet og

nútímadansi í Klassíska Listdansskólanum frá 4 ára aldri. Eftir útskrift af framhaldsbraut fékk hún hlutverk sem dansari í söngleiknum Fjarskaland sem var settur upp í Þjóðleikhúsinu. Einnig dansaði hún með FWD Youth Company þar sem hún vann með hinum ýmsu danshöfundum. Þaðan lá leið hennar í Listaháskólann á Samtímadansbraut og hún útskrifast þaðan vorið 2021. Meðfram skólanum hóf Bjartey kennara ferilinn en Bjartey hefur 
verið danskennari í 8 ár og kennt börnum og unglingum á öllum aldri. Ásamt því hefur hún unnið sem atvinnudansari og danshöfundur bæði hérlendis og
erlendis. Sem dansari hefur hún hefur meðal annars starfað hjá Íslenska Dansflokknum, Ballet Axis og danska dansleikhús flokknum The Nordic Beasts. Um þessar mundir dansar Bjartey í Söngleiknum Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum.  Sem danshöfundur hefur Bjartey skapað sín eigin verk ásamt því að semja hreyfingar í verkum annara. Hún samdi verk sem heitir VENUS ásamt Önnu Guðrúnu Tómasdóttur en þær hafa sýnt það víða í Reykjavík m.a. í Ásmundarsal en stefna næst á að fara með verkið erlendis. Hún hefur einnig samið sviðshreyfingar í 5 óperu uppfærslum með Sviðslistahópnum Óði og Kammeróperunni og kóreógraferað tónlistarmyndbönd með GDRN og Róshildi. 

Cristian.JPG

Cristian Ávila Dominguez

Kennari

...

5-IMG_8586_jpg.jpg

Diljá Þorbjargardóttir

Kennari

Diljá hóf ballettnám sitt við Ballettskóla Sigríðar Ármann þegar hún var þriggja ára gömul. Hún lauk námi á framhaldsbraut Klassíska listdansskólans árið 2022 og dansaði eftir það með FWD Youth Company í þrjú ár. Diljá byrjaði að kenna í Dansgarðinum – Óskandi árið 2023 og hefur kennt forskólanum og grunnstigunum ballett, nútímadans og skapandi dans. Hún er einnig umsjónarkennari í Landakotsskóla og kennir þar skapandi dans og íslensku. Diljá elskar að vinna með börnum og þá sérstaklega á skapandi hátt þar sem þau fá að skína. Diljá er með meistaragráðu í ritstjórn og útgáfu og kennsluréttindi frá Háskóla Íslands.

3-IMG_8581_jpg.jpg

Emma Eyþórsdóttir

Kennari

...

19-IMG_8855_jpg.jpg

Erna Kristín Jónasdóttir

Kennari

Erna er atvinnuballettdansari sem útskrifaðist frá Listdansskóla Íslands 2018 af klassískri dansbraut og hefur starfað út á Bretlandi frá 2019. Samsíða náminu þá lærði hún í Joffrey Ballet í Chicago, Royal Danish Ballet, í Dresden og í San Francisco Ballet School á sumrin. Erna hefur starfað og dansað víða um heim og sýnt á mörgum stöðum meðal annars á Bretlandi, Írlandi, í Japan og á Maldíveyjum. Erna dansaði með Birmingham Royal Ballet 2025 þar sem hún dansaði í Cinderella, Sleeping Beauty og Les Sylphides. Fyrir það þá starfaði hún á tímabundnum samningi hjá English National Ballet. Þar dansaði hún í Royal Albert Hall, fyrst í Christopher Wheeldon´s Cinderella sumarið 2023 og síðar í Swan Lake 2024 en sú sýning var filmuð af BBC og sýnt í bíóhúsum um allan heim. Erna er einnig dansari með Ballet Axis, neóklassískum ballettflokki á Íslandi. Hún dansaði og samdi hluta af verkinu Pointe of Axis en sú sýning vann til Grímuverðlauna fyrir Danshöfundur Ársins 2026. Erna byrjaði ferilinn með störfum hjá Ballet Theatre UK þar sem hún dansaði sólóista og aðaldansara hlutverk. Hún dansaði þar í Wizard of Oz, Beauty & the Beast, Romeo & Juliet, Snow Queen og Giselle. Erna hefur einnig dansað sem sólóisti með Cork City Ballet (Sleeping Beauty og Svanavatnið) og Kings International Ballet (Hnotubrjóturinn og Giselle) 2024 og 2026. Að auki með Mergaliyev Classical Ballet (Swan Lake) og hefur hún tekið þátt í ýmsum sjálfstæðum verkefnum og fyrir ýmsa listamenn allt frá Kanye West, Sigur Rós og Of Monsters and Men. Erna hefur kennt á Íslandi milli samninga erlendis.

21-IMG_8879_jpg.jpg

​Hrefna Kristrún Jónasdóttir

Kennari

Hrefna er atvinnuballettdansari sem starfar mestmegnis á Bretlandi og einnig á Íslandi. Hún hóf dansnám sitt í Bandaríkjunum en útskrifaðist frá Listdansskóla Íslands árið 2018. Hún varði sumrunum hjá San Francisco Ballet School, Joffrey Ballet í Chicago og The Royal Danish Ballet School. Eftir útskrift frá Menntaskólanum Í Reykjavík 2019 tók hún til starfa hjá Ballet Theatre UK. Hún sýndi víða um Bretland meðal annars ‘Romeo & Juliet’, ‘Giselle’, ‘Beauty & The Beast’, Wizard of Oz’ og ’Snow Queen’ frá árunum 2019-2024 sem corps de ballet, soloist og principal. Hrefna vann árið 2025 hjá Birmingham Royal Ballet þar sem hún dansaði í Cinderella, Les Sylphides og Sleeping Beauty. Sýndi hún bæði á Bretlandi og helstu borgum Japans á sýningarferðalagi með flokknum. Hún hefur einnig starfað hjá English National Ballet tvö sumur (2023 & 2024) að dansa í Royal Albert Hall bæði Cinderella eftir Christopher Wheeldon og Swan Lake eftir Derek Deane, sem var filmað af BBC og sýnt í helstu kvikmyndahúsum heims. Hrefna er einnig dansari með Ballet Axis, neóklassískum ballettflokki á Íslandi. Hún var ein danshöfunda fyrir verkið 'Pointe of Axis' sem Ballet Axis setti á svið og hlaut Grímuverðlaunin, fyrir Danshöfundur ársins 2026. Hrefna hefur líka tekið þátt í sjálfstæðum verkefnum og dansað hjá Cork City Ballet (Sleeping Beauty, Swan Lake), Kings International Ballet (Nutcracker, Giselle) og á Maldíveseyjum fyrir m.a. Kanye West. Hefur hún einnig unnið með hljómsveitunum Of Monsters and Men og Sigur Rós við ýmis verkefni. Árið 2023 hlaut hún einnig kennsluréttindi í ‘Progressing Ballet Technique’. 

Inga Maren.JPG

Inga Maren Rúnarsdóttir

Kennari

Inga Maren Rúnarsdóttir er dansari og danshöfundur. Hún hefur unnið hjá Íslenska dansflokknum frá 2011 og með öðrum danshöfundum á Íslandi og erlendis. Hún hlaut BA gráðu frá London Contemporary Dance School, er með kennsluréttindi frá David Zambrano auk þess sem hún er menntaður yoga kennari. Inga Maren sýndi nýlega sólóverkið ÆVI og barnaverkið Dagdrauma.

Inga María.JPG

Inga María Olsen

Kennari

Inga María kennir nútímadans hjá Óskanda. Hún starfar einnig sem dansari, danshöfundur og flugfreyja. Inga hefur æft ballett frá 4 ára aldri og útskrifaðist bæði frá Klassíska Listdansskólanum og Listdansskóla Íslands. Ásamt því að vera í dansnámi tók hún þátt í uppsetningu Borgarleikhússins á Billy Elliot árin 2014-2016. Inga útskrifast svo árið 2022 með BA í samtímadansi úr Listaháskóla Íslands, með skiptinámi í KHiO í Osló. Eftir útskrift hefur Inga sótt sér reynslu bæði úti og hér heima. Hún fór td. í starfsnám í Gautaborgaróperuna, farið á Hofesh Shechter námskeið og Fighting Monkey Intensive. Inga var einnig valin á námskeið hjá James Wilton í Bretlandi. Hún tók einnig þátt í sýningunni Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur, sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu, Tjarnarbíó, Menningarfélagi Akureyrar og sendiráðinu í Osló. Ásamt þessu hefur Inga tekið þátt í ýmsum skemmtilegum verkefnum, tónlistarmyndböndum, söngvakeppninni og auglýsingum. Svo hefur hún einnig búið til og sýnt verk sjálf og í samstarfi við aðra.  

KIRILL BEREZOVSKI_FOTO-IRINA ROGAVA2.jpg

Kirill Berezovsk

Kennari

Kirill Berezovsk er fæddust í Úkraínu er danshöfundur, dansari og kennari sem ólst upp í Freiburg í Þýskalandi. Hann lauk námi í sviðsdansi og danssmíði í Mannheim árið 2015 og hélt áfram listrænni þróun sinni með námi við Alvin Ailey School og Broadway Dance Center í New York. Auk þess hefur hann sótt vinnustofur hjá Hofesh Shechter Company, Emanuel Gat Dance og Johannes Wieland, auk þess að dvelja í sex mánaða listamannaresidens hjá Kibbutz Contemporary Dance Company í Ísrael.

Sem dansari hefur Kirill unnið með fjölmörgum danshöfundum og dansflokkum víða um heim, þar á meðal Yasmeen Godder Company, Go Plastic Company, Magdalenu Weniger, Edan Gorlicki, Ashley Wright, Carlu Jordao, Barış Karademir, MIRA Dance Company, Richard Oberscheven, Eric Trottier og Max Levy.

Frá árinu 2017 hafa dansverk hans verið sýnd bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars My Hungry Heart fyrir Fullstop Dance Company í San Francisco og Of Dreams to Come, sem hefur verið sýnt á Tanzfest Freiburg, Tanz-Kulturdialog og Tanz! Heilbronn.

Samhliða eigin danssköpun starfar Kirill sem æfingastjóri, aðstoðardanshöfundur, kennari og leiðbeinandi. Hann hefur átt í samstarfi við fjölmargar stofnanir og dansfélög, þar á meðal Íslenska dansflokkinn, Volkstheater Rostock, Tanz Luzern, K3 – Kampnagel Hamburg, Bad Lemons Munich, Tanznetz Freiburg, Tanzhaus Zürich, Tanzbüro Basel og Bodies of Empowerment í San Francisco.

Verk Kirills einkennast af sterkri líkamlegri nálgun og næmni fyrir tónlist. Í sköpun sinni leitast hann við að skapa jafnvægi milli forms og innsæis, nákvæmni og hráleika, þar sem hreyfing verður vettvangur fyrir samspil líkama, takts og tilfinninga.

IMG_9211_jpg.jpg

Sara Katrín Kristjánsdóttir

Kennari

Sara Katrín er fædd og uppalin í Reykjavík og byrjaði 5 ára gömul í ballet hjá Eddu Scheving. Seinna færði hún sig yfir í fimleika og æfði þá með fimleikafélagi Gerplu í nokkur ár. Á unglingsaldri snéri hún sér aftur að ballett hjá Klassíska listdansskólanum og útskrifaðist þaðan árið 2011 af nútímabraut. Sara Katrín kennir 3 til 7 ára börnum ballet og samtímadans hjá Klassíska listdansskólanum og hefur gert síðan árið 2014. Einnig kenndi hún samtímadans í leikskólum árið 2018 í gegnum Dansgarðinn. Árið 2015 vann hún hjá Hreyfingu í 2 ár sem hópatímakennari og kenndi þar hópatíma allt frá Zumba yfir í styrktar- og þrektíma. Á svipuðum tíma öðlaðist hún einnig Zumba og Zumba-kids réttindi. Árið 2017 lauk hún B.Sc gráðu í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfar nú sem íþrótta- og heilsufræðingur í Heilsuborg. Að auki æfir Sara Katrín Crossfit og langhlaup og stefnir á að hlaupa Laugaveginn 2019 (ofur maraþon - 55 km.) annað árið í röð ásamt því að stefna á burtfarapróf í píanóleik við fyrsta tækifæri.

Sóley.JPG

​Sóley Ólafsdóttir

Kennari

Sóley Ólafsdóttir kennir nútímadans hjá Óskanda. Sóley Ólafsdóttir starfar einnig sem dansari, danshöfundur, listskautaþjálfari og fjallaleiðsögumaður. Bakgrunnur Sóleyjar kemur aðallega frá þjálfun á listskautum. Sóley stundaði listskauta af miklu kappi til 16 ára aldurs en þá hóf hún nám við Menntaskólann í Reykjavík og einnig nám við framhaldsbraut Jazzballettskóla Báru, JSB. Eftir stúdents- og diplómupróf hóf Sóley háskólanám við samtímadansbraut LHÍ og útskrifaðist þaðan vorið 2022. Sem hluta af námi sínu við LHÍ tók hún skiptinámsönn við dansbrautina í KHiO, listaháskólanum í Osló. Eftir útskrift hefur Sóley sótt sér reynslu erlendis, m.a. sem starfsnemi með dansflokknum í Gautaborgaróperunni og Carte Blanche, alþjóðlega samtímadansflokki Noregs. Sóley vinnur hörðum höndum í sjálfstæðu danssenunni, þar sem hún vinnur í samstarfi við nokkra hópa og tekur þátt í að skapa og koma fram í spennandi og skemmtilegum dans- og dansleikhúsverkum.

IMG_9079_jpg.jpg

Teresa María Era

Kennari

Teresa hóf ballettnám aðeins fjögurra ára gömul. Hún stundaði nám við Klassíska listdansskólann bæði á grunnstigi og á framhaldsbraut. Frá árinu 2019 hefur hún kennt í forskólanum og nýtur þess að miðla dansgleðinni til yngstu nemendanna.

Það sem Teresa hefur mest gaman af í kennslunni er að fylgjast með nemendum vaxa í sjálfstrausti og gleði í gegnum dansinn. Hún leggur áherslu á að skapa jákvætt og hvetjandi námsumhverfi þar sem hver nemandi fær tækifæri til að blómstra.

Samhliða dansinum lauk Teresa BS-gráðu í líftækni árið 2026 og starfar einnig sem líftæknir.

Þorbjörg.JPG

Þorbjörg Jónasdóttir

Kennari

Þorbjörg byrjaði að stunda ballett í ballettskóla Sigríðar Ármann. Leiðin lá síðan í Listdansskóla Íslands þar sem hún var í sjö ár og útskrifaðist af grunnskóladeild árið 2018. Henni bauðst síðan þriggja ára skólavist í San Francisco Ballet School. Hún hefur farið á margvísleg sumarnámskeið um ævina líkt og í París, London, Englandi og Bandaríkjunum. 

Kennarar sem hafa starfað hjá Dansgarðinum

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_125.jpg

Alejandra P. De Avila

Kennari

Bakgrunnur Alejandra er í tónlist og leikhúsi og hún er líka menntaður kennari í tónlistar- og hreyfifræðslu. Sem kennari og rannsakandi hefur hún sérhæft sig í rödd og hreyfingu með sómatískri nálgun sem leitar að jafnvægi í líkamanum og stefna að heilindum mannlegrar tjáningar.
 
Árið 2017 stofnaði hún Sila II Act, fyrirtæki sem veitir skapandi vinnustofur og listrænar rannsóknir. Í gegnum Sila II Act I hefur hún ekki aðseins þróað sína eigin fræðsluaðferð sem dreifist víða áhorfendur, allt frá áhugamönnum til atvinnumanna en hefur einnig leitt námskeið í fjölbreyttum löndum eins og, Austurríki, Grænland, Bandaríkin, Ísland og Svíþjóð. Frá 2017 – 2019 starfaði ég sem kennari í tónlist og hreyfingu Rhythmical Education við Listaháskóla Íslands. Verkefni hennar fól í sér að leggja lokahönd á námskrá fyrir BA-nema.

Með listaferli sínum hefur hún skapað, framleitt og leikið í sínum eigin sýningum í sjálfstæðum leikhúsum og leiksviðum eins og Lalish TheatreLabor, AlteSchmiede, Interkulturelles Theatre og MuThtheater í Vín í Austurríki; Tjarnarbíó, Gamblabíó, Gallerí Kjarvalstaðir, Listaháskóli Íslands í Reykjavík.
 
Eftir að hún varð móðir hefur hún snúið aftur til áhugamannanáms, kennslu dans og rödd. Á síðasta ári hefur hún einnig tekið við stöðu hjá leikskólakennsla Music & Movement (Eurhythmics) fyrir ung börn aldrinum 18 mánaða - 5 ára.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

14-IMG_8786_jpg.jpg

Alejandro Bencomo

Kennari

Alejandro Bencomo er dansari í samtímadansi og klassískum ballett með yfir ellefu ára starfsreynslu. Hann er jafnframt atvinnusirkuslistamaður og loftfimleikamaður með yfir fimmtán ára reynslu af líkamleikhúsi og loftfimleikum. Alejandro er fæddur og uppalinn í Venesúela og leggur áherslu á rannsóknir á hreyfingu og listræna þróun í starfi sínu.

Hann stundaði nám við National University of the Arts og hefur hlotið þjálfun hjá ýmsum stofnunum, þar á meðal Caracas Danza. Menntun hans og reynsla hafa mótað einstaka samblöndu af tæknilegri nákvæmni og tjáningarríkri frásögn sem einkennir störf hans þvert á ólíkar listgreinar.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_006.jpg

Alexey S. Mandrikov

Kennari

2001 lauk Bolshoi ballettakademíunni sem ballettdansari. Dansaði í leikhúsi klassíska ballettsins Kasatkina og Vasilev. Atlantic ballet theatre í Kanada. Rahvusooper Eistland. Og var gesta sóló dansari fyrir marga dansflokka í heiminum. 2009 lauk Bolshoi ballettakademíunni sem ballettkennari/danshöfundur. Var kennari í mörgum skólum í Rússlandi, Japan, Portúgal. Hélt meistaranámskeið í öðrum löndum um allan heim.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Screenshot 2020-07-27 at 11.45.24.png

Alma Kristín Ólafsdóttir

Kennari

Alma Kristín hóf balletnám sitt í Klassíska listdansskólanum, árið 2000, þá fjögurra ára gömul. Hún útskrifaðist af framhaldsbraut skólans árið 2012. Árið 2016 var danshópurinn FWD Youth Company stofnaður og var Alma Kristín meðlimur í þeim hópi þar til árið 2021. Hún hefur einnig sótt sumarnámskeið erlendis, bæði í Kaupmannahöfn og London. Alma Kristín hefur kennt klassískan ballet við skólann síðan árið 2015. Hún er menntaður hjúkrunarfræðingur og hefur starfað á hjartadeild Landspítalans. Nú stundar hún ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Screenshot 2020-07-27 at 11.40.29.png

Anna Kolfinna Kuran

Kennari

Anna Kolfinna Kuran er sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur. Hún útskrifaðist með BA- gráðu af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013. Eftir útskrift hefur hún unnið að ýmsum verkefnum í samstarfi við aðra eða að eigin verkefnum bæði sem höfundur og flytjandi. Verk hennar taka á sig ólíkar myndir þar sem flæði milli miðla, greina og aðferða er greinilegt, megin áherslan liggur þó í því sjónræna og líkamlega. Gegnumgangandi þemu í verkum hennar eru að rannsaka viðfangsefni sem við koma líkama konunnar og samtíma femínisma. Anna Kolfinna er meðal stofnenda sviðslistahópanna Dætur og Kraftverk sem unnið hafa að ýmsum sýningum síðustu ár. Undanfarin þrjú ár hefur Anna Kolfinna einblínt á persónulegt verkefni sem ber titilinn Konulandslag þar sem hún rannsakar tengsl milli kyns og rýmis. Auk þessa verkefnis hefur Anna Kolfinna einnig fengist við samstarfsverkefni við aðra listamenn, þar á meðal kom hún fram sem flytjandi í verkinu Atómsstjarna sem sýnt var í Ásmundarsal á Listahátíð 2018 og samdi verkið Allar mínar systur fyrir ungmennadansflokkinn Forward Youth Company sem sýnt var á hátíðinni Únglingurinn í Hafnarhúsinu 2018. Vorið 2017 lauk hún fræðilegu meistaranámi við NYU í performance fræðum (e. performance studies).

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_091.jpg

Amanda Líf Fritzdóttir

Kennari

Amanda Líf hefur kennt nemendum á öllum aldri frá 3 til 19 ára samtímadans, skapandi dans og ballett síðan hún var 17 ára. Hún hefur mest kennt í Dansgarðinum, Óskanda og Klassíska listdansskólanum en einnig hefur hún kennt við Danslistarskóla JSB, Ballettskóla Eddu Scheving og Mýrarhúsaskóla/Valhúsaskóla.Amanda útskrifaðist af listdansbraut Danslistarskóla JSB árið 2018 og af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2021.Amanda hefur alla tíð elskað hreyfingu og list svo dansinn hefur verið fullkomin blanda af þessu tvennu, hún elskar að vinna með börnum og unglingum og hefur mikinn áhuga á samskiptunum sem fara þar fram. Hún hefur meðal annars unnið sem dansari í Joensuu Finnlandi og lengi vel vann hún á leikskóla.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

mynd 3 .jpg

Díana Rut Kristinsdóttir

Kennari

Díana Rut er sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2015 af sviðlistabraut með áherslu á samtímadans. Frá útskrift hefur hún unnið við mjög fjölbreytt verkefni, allt frá því að vera danshöfundur tónlistarmyndbanda til þess að koma fram í þverfaglegum sviðslistasýningum og danssýningum. Meðal tónlistarmyndbandaþar sem Díana hefur verið danshöfundur eru Samaris („Wanted 2 say“) og Seven Lions Creation featuring Vök. Samhliða hefur hún kennt samtímadans í Listaháskóla Íslands, Klassíska listdansskólanum og Listdansskóla Íslands. Díana starfaði einnig um tíma sem yfirþjálfari í bardagaíþróttafélaginu Mjölni þar sem hún sá um kennslu í hreyfiflæði. Á síðasta ári festi Díana Rut kaup á stórum sveitabæ á Suður-Sjálandi í Danmörku ásamt manni sínum Erlendi sem er klíniskur sálfræðingur, þar ætla þau að sameina sérsvið sín til að skaparannsóknarvettvang fyrir listir, geðrækt og hreyfingu.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

7-IMG_8606_jpg.jpg

Eydís Rose Vilmundardóttir

Kennari

Eydís Rose Vilmundardóttir er sjálfstætt starfandi dansari og listamaður. Hún útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Hún tók sér árspásu frá náminu á Íslandi til að stunda dansleikhúsnám í Englandi 2014-2015 undir stjórn Jasmin Vardimon Company. Hún hefur fengið þann heiður að vinna með listamönnum á borð við Jasmin Vardimon, Athanasia Kanellopoulou, Marilena Dara, Mafalda Deville, Sögu Sigurðardóttur og Lucie Vigneault.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

raskportrett.jpg

Gígja Jónsdóttir

Kennari

Gígja Jónsdóttir er danshöfundur, danskennari og myndlistarkona. Hún útskrifaðist af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013, stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík 2015-2016 og lauk meistaranámi í myndlist frá San Francisco Art Institute vorið 2018 þar sem hún einbeitti sér að gjörninga- og videólist. Gígja hefur tekið þátt í
fjölda sýninga hérlendis og sýnt verk sín á Reykjavík Dance Festival, LungA listahátíð, Act Alone, í Mengi, Tjarnarbíói, Harbinger gallery, Listasafni Reykjavíkur, Midpunkt o.fl. Samstarfssýning hennar og Guðrúnar Selmu Sigurjónsdóttur, A Guide to the Perfect Human var tilnefnd til Grímuverðlauna sem Sproti ársins árið 2017. Þátttökusýning hennar WikiHow to Start a Punk Band sem var frumsýnd í Mengi árið 2017 hefur þróast sem pönknámskeið sem Gígja hefur haldið fyrir unglinga, ungar konur, eldri borgara og á næstunni, börn. Gígja hefur kennt nútímadans, klassískan ballett, spuna, skapandi ferli og gjörninga fyrir mismunandi aldurshópa, frá 6 ára upp í fullorðna. Gígja hefur kennt í Dansgarðinn, í Óskandi og Dans fyrir alla, Leynileikhúsinu, og í Listaháskóla Íslands.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Screenshot 2020-07-27 at 15.14.42.png

Guðrún Svava Kristinsdóttir

Kennari

Guðrún Svava Kristinsdóttir er útskrifaður dansari og danskennari frá Martha Graham School of Contemporary Dance í New York borg, hún er einn af fáum kennurum með þessa menntun í Evrópu. Guðrún Svava var einnig dansari hjá Graham II, nemendadansflokki Mörtu Graham Dansflokksins sem hún stundaði einnig þjálfun hjá.Guðrún Svava er einnig jógakennari og Pilates kennari og leggur sérstaka áherslu á góða og rétta líkamsbeitingu út frá líkamsbygging hvers og eins, en hún hefur sótt fjölmörg námskeið í því hvernig megi koma í veg fyrir og endurhæfa meiðsli með dansara í huga. Guðrún Svava hefur undanfarin ár kennt og byggt upp eigin námskeið við Listaháskóla Íslands í leiklistardeild, dansdeild og tónlistardeild, og bjó til sérstakt námskeið í anatómíu fyrir dansara sem hún hefur kennt fyrir alla árganga síðan 2013.Guðrún Svava er einnig verkfræðingur að mennt og útskrifaðist nýlega frá Cornell háskólanum í New York með tvöfalt MS í upplýsingafræði og upplýsingafræði. Systems.Vegna fjölbreyttrar reynslu sinnar í tækni- og listageiranum leggur hún mikið upp úr námskeiðum sínum svo hver einstaklingur fái að njóta sín andlega, líkamlega og vitsmunalega. Guðrún Svava leggur mikið upp úr tækniþróun dansara og notar áralanga reynslu frá New York í þessu samhengi. Hún leggur einnig áherslu á takt og tónlistarnæmni nemenda sinna í bland við flutning og leikræna tjáningu danssins.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Screenshot 2020-07-27 at 11.41.45.png

Hildur Björk Möller

Kennari

Hildur Björk hóf störf hjá Klassíska listdansskólanum árið 2009 og hefur aðallega verið með táskókennslu ásamt því að kenna klassískan ballet. Hildur hefur í gegnum tíðina kennt flestöllum aldurshópum. Hún hefur verið að kenna nemendum sem eru að taka sín fyrstu skref á táskóm og þeim sem eru lengra komnir. Hildur Björk er fyrrum nemandi Klassíska listdansskólans og útskrifaðist þaðan árið 2009. Árið 2010 tók hún þátt í balletsýningu í London með National Youth Ballet. Hildur Björk hefur kennt ballet samhliða háskólanámi og vinnu í gegnum árin. Hún hefur lokið B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.A. í Náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Hildur Björk hefur unun af því að kenna og nýtur þess að sjá framfarir nemenda sinna.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_053.jpg

Hrund Elíasdóttir

Kennari

Hrund Elíasdóttir hefur starfað hjá Klassíska Listdansskólanum frá árinu 2013. Hún kennir ballett og hefur kennt öllum aldurshópum. Hrund hóf ballettnám 5 ára gömul hjá Ballettskóla Eddu Scheving og flutti sig yfir í Klassíska Listdansskólann 16 ára gömul, en hún útskrifaðist þaðan af Listdansbraut árið 2010. Einnig stundaði hún nám við l‘Académie Américaine de Danse de Paris í Frakklandi. Samhliða kennslunni er hún með BA gráðu í bókmenntafræði og frönsku frá Háskóla Íslands. Hún sótti ballettkennara námskeið hjá Central Pennsylvania Youth Ballet sumarið 2017 og var hluti af FWD youth company veturinn 2017-18.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_087.jpg

Íris Ásmundardóttir

Kennari

Eftir útskrift af klassískri listdansbraut frá Listdansskóla Íslands, meðfram opinni braut hjá Menntaskólanum við Hamrahlíð, hélt Íris út til London til þess að stunda nám við Rambert School of Ballet and Contemporary Dance. Þar fékk hún meðal annars tækifæri til að sýna í Royal Opera House og vinna með danshöfundum á borð við Julie Cunningham, Kim Brandstrup, Cameron McMillan og Vidya Patel. Íris útskrifaðist frá Rambert með ‘First Class BA Hons Degree’ sumarið 2021. Nýverið kláraði hún mastersnám í ‘performance and professional practices’ þar sem hún dansaði með Emergence Postgraduate Dance Company í Manchester undir listrænni stjórn Joss Arnott. Þar fór hún á sýningaferðalag um Bretland, og sýndi ný verk eftir Kevin Finnan, Gosia Mielech og Vidya Patel, ásamt enduruppsetningu á dansverkinu Wild Shadows eftir Joss Arnott. Íris hefur einnig fengið inngöngu í og sótt sumarnámskeið hjá Boston Ballet, American Ballet Theatre, Alonzo King LINES Ballet og Mark Bruce Company. 
Sumarið 2021 öðlaðist Íris kennararéttindi í ‘barre’ styrktarþjálfun frá The Barre Collective í London.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Mynd Júlía.png

Júlía Kolbrún Sigurðardóttir

Kennari

...

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

IMG_9097_jpg.jpg

Katie Hitchcock

Kennari

Katie Hitchcock er sjálfstætt starfandi dansari, upprunalega frá Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hún lærði nútímadanstækni í Orange Coast College og dans, leikhús og sviðsframkomu í Berkley, háskólanum í Kaliforníu. Katie flutti til Íslands 2017 og var fljót að tengjast danslífinu á Íslandi með því að dansa með ungmennadansflokknum Forward 2018-2022.
Í ár hefur hún kennt ballett fyrir börn og fullorðna í Óskanda og er að þróa þriðja hlutann í röð sólóverka „Disposable dances“ sem hún hefur samið.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

11-IMG_8666_jpg.jpg

Natalía Ísfeld Myrrudóttir

Kennari

...

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

11265209_10152967569808823_6833500609219944092_n.jpeg

Ólöf G. Söebech

Kennari

Ólöf G. Söebech stundaði nám við klassíska Listdansskólann og síðar við Codarts Rotterdam (þá Rotterdamse Dansacademie) á danskennarabraut. Hún lauk einnig meistaragráðu í umhverfisfræðum við Vrije Universiteit Brussel. Hún býr yfir fjölbreyttri reynslu hvað varðar menntun, þekkingu og hæfni sem spannar allt frá sviðslistum, kennslu og verkefnastjórn til rannsókna innan háskólasamfélagsins á sviði evrópskrar umhverfisstefnu. Hún starfaði meðal annars sem verkefna og æfingastjóri hjá Íslenska dansflokknum 2004-2006. Í dag starfar hún við Vrije Universiteit Brussel. Ólöf kenndi ballet og nútímadans við KLS frá 1995 til 2005 og hefur verið viðriðin skólann frá því að hann var nýstofnaður. 

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_065.jpg

Sara Margrét 

Kennari

Sara Margrét útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Eftir útskrift hefur hún unnið að ýmsum verkefnum með fjölbreyttum hópi listamanna í sjálfstæðu danssenunni á Íslandi og í Danmörku, bæði sem flytjandi og höfundur. Samhliða þessu hefur Sara kennt börnum og unglingum ballet, nútímadans og skapandi dans.

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Screenshot 2020-07-27 at 11.39.07.png

Sóley Frostadóttir

Kennari

Sóley Frostadóttir starfar sem danshöfundur, kennari og ritstjóri. Hún útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi frá Listaháskóla Íslands 2017. Í MA námi sínu í ritstjórn og útgáfu lagði hún áherslu á listtímarit, listaverkabækur og bókverk. Hún er ritstjóri tímaritsins Dunce, sem fjallar um kóreografíu og gjörningalist. Hún lauk MFA námi í sviðslistum við Listaháskóla Íslands 2022. Sóley vinnur þvert á miðla og hefur sýnt verk sín m.a á Reykjavík Dance Festival í Mengi, á Barnamenningarhátíð, Plöntutíð, í Midpunkt, Gerðarsafni, Listasafni Reykjavíkur og í Ásmundarsal. 

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

183333278_472999433777779_961284658875913609_n.jpg

Sæunn Ýr Marinósdóttir

Kennari

Sæunn stundaði nám við Listdansskóla Íslands, lauk stúdentsprófi frá Konunglega Sænska Ballettskólann og útskrifaðist síðan frá Hungarian Dance Academy með BA gráðu í klassískum ballet árið 2010.Sæunn dansaði fyrir Hungarian National Ballet, Dortmund Theater og Peter Schaufuss Balleten. Þar dansaði hún í fjölda verka, m.a. La Bayadère (Petipa), Sleeping Beauty, Nutcracker, Swan Lake, Michael I’m bad, Romeo and Juliet, The King, Manden der ønskede sig en havudsigt (Schaufuss), In the Middle Somewhat Elevated (William Forsythe), Jewels (George Balanchine) og Hamlet (Xin Peng Wang).Á árunum 2011 til 2016 kenndi Sæunn við Listdansskóla Íslands og Klassíska Listdansskólann. Þar kenndi hún nemendum frá 6. stigi og framhaldsbraut, en sáeinnig um uppsetningu sýninga (Klassíski Listdansskólinn), undirbúning fyrir sólókeppnir, auk einkatíma.Frá árinu 2018 hefur Sæunn starfað sem barre- og ballettkennari í Luxemborg. Á þeim tíma lauk hún Barre-réttindum frá Barreworks London (2019) og 200 tíma jógakennaranámi (2020).

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_077.jpg

Yelena Arakelow

Kennari

Yelena Arakelow, fædd 1993 í Zürich (CH) er danslistakona á uppleið og hefur aðsetur í Reykjavík (IS) síðan 2015. Hún er með BA gráðu í listdansi frá Listaháskóla Íslands.
 
Þverfaglegt verk hennar um líkamlega tilveru og eftirvæntingu í dansi hefur verið sýnt í Listasafni Reykjanesbæjar (2021), flutt á  UNM Iceland (2022), Plöntutið (2021) sýningu Tanzhaus Zürich (2020), Nuuk Nordic (2021) og International Dance Festival Lettlandi. (2020). Hún starfar sem dansari hjá Steinunni Ketilsdóttur og er prófessor í spuna við Listaháskóla Íslands.

y.arakelow@gmail.com
https://yelenaarakelow.com/
https://www.instagram.com/sthwhateverornot/

Heading 3

Mynd: Lilja Birgisdóttir

Dansgarðurinn-teachers_043.jpg

Þórunn Ylfa Brynjólfsdóttir

Kennari

Þórunn 

Hlutverk Dansgarðsins er að :

BJÓÐA UPP Á FAGLEGA OG FJÖLBREYTTA DANSKENNSLU, Í KLASSÍSKUM BALLET, NÚTÍMA- OG SAMTÍMADANSI OG SKAPANDI DANSI.

 

GERA DANSKENNSLU OG VIÐBURÐI AÐGENGILEGA FYRIR BÖRN OG UNGT FÓLK.

 

EFLA UMRÆÐU UM SVIÐSLISTIR Á MILLI UNGRA ÁHORFENDA OG LISTAMANNA.

 

SAMEINA OG STYÐJA LISTAMENN SEM ERU AÐ VINNA MEÐ DANS OG SVIÐSLISTIR FYRIR UNGT FÓLK OG ALLA ÁHORFENDUR.

 

VINNA MEÐ ÖÐRUM STOFNUNUM TIL AÐ SVARA BETUR SAMFÉLAGSÞÖRFUM Á SVIÐI DANS- OG SVIÐSLISTAR.

Óskandi

Eiðistorg
170 Seltjarnarnes.

oskandi@oskandi.is


 

  • Facebook
  • Instagram
  • Facebook
  • Instagram

Dans fyrir alla 

dansgardurinn@dansgardurinn.is


 

MRN_IS_2L_CMYK_2022.png

© 2023 by Train of Thoughts. Proudly created with Wix.com

bottom of page