
Framhaldsbraut
AFSLÁTTUR
- Hægt er að nota Frístundastyrk fyrir öll námskeið sem eru 10 vikur eða lengri fyrir nemendur 6 - 18 ára.
- Systkinaafsláttur: 30% afsláttur af námsgjöldum hjá systkinum.
1.-3. ár
Grensásvegur 14
ATH!
Áður en þú skráir þig í gegnum skráningar takkann hér fyrir neðan þarf að taka inntökupróf og fá samþykki fyrir inngöngu á framhaldsbraut KLS
Nemendur á framhaldsbraut eru í það minnsta í tímum 21 klst. á viku en reikna má með að bætist við aukatímar og verkefni utan hefðbundinnar stundatöflu.
Námið í Klassíska listdansskólanum er einstaklingsmiðað þó svo einnig sé lögð rík áhersla á samvinnu í verkefnum og hóp dansverkum. Skólinn leggur áherslu á að virkja styrkleika hvers og eins auk þess sem nemendur eru kynntir fyrir þeim fjölbreytileika sem listdans hefur upp á að bjóða. Eftir að hafa lokið framhaldsbraut við KLS eru nemendur tilbúnir að hefja dansnám á háskólastigi. Ótal nemendur sem hafa útskrifast af framhaldsbraut KLS hafa náð langt í dans senunni bæði hérlendis og erlendis.
Kennsla hefst: 12. janúar 2023
Fjöldi kennsluvikna: 20